Eurovision í skugga mótmæla – veisluhöld og vígbúnaður í Malmö
Stanslaus mótmæli Þátttöku Ísrael í Eurovision er reglulega mótmælt í Malmö. Búist er við því að mótmælin muni aukst til muna þegar nær dregur lokakeppninni. Mynd: AFP

Eurovision í skugga mótmæla – veisluhöld og vígbúnaður í Malmö

Það er ekki tek­ið út með sæld­inni að efna til Eurovisi­on­há­tíð­ar. Þessu eru íbú­ar Mal­mö að átta sig á nú þeg­ar há­tíð­ar­höld­in eru að hefjast. Em­il B. Karls­son hef­ur fylgst með frétta­flutn­ingi sænskra fjöl­miðla af áhyggj­um sem fylgja gleði­há­tíð­inni.

Ætla má að þeir borgarfulltrúar sem fögnuðu sem ákafast í Ráðhúsinu í Malmö þann 7. júlí á síðasta ári, þegar tilkynnt var að borgin hefði verið valin til að halda Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision 2024, séu nú farnir að ókyrrast. Mótmæli vegna árásar Ísraelshers á Palestínumenn veldur þar mestu. Í ofanálag er í Svíþjóð hátt viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkaógnar sem er tilkomið vegna opinberra Kóranbrenna í Svíþjóð. Strangt öryggiseftirlit á því eftir að setja svip sinn á hátíðina.  

Liðsauki lögreglu frá Noregi og Danmörku 

Viðbúnaðarstig lögreglu hefur verið aukið. Á meðan að á rúmlega vikulangri Eurovisionhátíð stendur verða lögreglumenn sýnilegir um alla borg, sumir þungvopnaðir, berandi sjálfvirk skotfæri. Vegna umfangsins hefur sænska lögreglan samið við lögregluembætti í Danmörku og Noregi um að senda liðsauka frá þessum nágrannalöndum. Þá verður vopnaleit á gestum algeng þar sem fólk safnast saman og í anddyrum hótela. Auk þess verða götulokanir víða um borgina. Bráðamóttökur sjúkrahúsa …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Leiðinlegt hvað þetta Gaza-stríð klyfur samfélagið okkar. Það er eins og aldrei áður hafi verið framin mannréttindabrot en allt í einu er fólk að tjá sig herskátt um Gaza sem hefur ekki látið heyra í sér varðandi Myjanmar, Suður-Sudan eða Jemen, en þar eru ekki minni mannréttindabrot framin en núna í Gaza.
    Reyndar er ég að hugsa, hvaða öfl kýnda undir þetta ósætti í okkar samfélagi. Ég meina, að fólk láti sig varða mannréttindi er bara jákvætt, en það er svo mikil heift og skautun núna. Gagnkvæma ofbeldið milli Araba og Israelsmanna er ekki nýtt af nálinni en aldrei áður hef ég upplifað að einhver atburður þarna fyrir botni Miðjarðarhafs hafði slík áhrif á okkar samfélag.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu