Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 2 árum.

Eigandi Arnarlax vill tryggja „sjálfbæran vöxt“ laxeldis á hafi úti

Sam­starf lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Salm­ar AS, eig­anda Arn­ar­lax, og fyr­ir­tæk­is Kj­ell Inge Rökke, um að þróa af­l­and­seldi á laxi er form­lega haf­ið. Á sama tíma reyn­ir Salm­ar AS að stækka starf­semi Arn­ar­lax á Ís­landi þar sem lax­eld­ið fer fram í fjörð­um lands­ins.

Eigandi Arnarlax vill tryggja „sjálfbæran vöxt“ laxeldis á hafi úti
Samstarf sem á að tryggja „sjálfbæran vöxt“ Samstarf Salmar og Aker hefur nú verið klárað með formlegum hætti en fyrrnefnda félagið er stærsti hluthafi Arnarlax á Bíldudal. Forstjórar og stærstu eigendur Salmar og Aker, Gustav Witzoe og Kjell Inge Rökke, sjást hér saman þegar samstarf fyrirtækjanna var kynnt í ágúst.

„Með því að klára þetta ferli með árangursríkum hætti er sú ákvörðun Salmar og Aker undirstrikuð að félögin ætli að vera leiðandi í því að tryggja sjálfbæran vöxt í fiskeldisiðnaðinum,“ segir forstjóri norska laxeldisfyrirtækisins Salmar AS, Gustav  Witzoe, um samstarf fyrirtækisins við norska fyrirtækið Aker um að þróa tæknilausnir til að stunda aflandseldi á laxi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Salmar AS til norsku kauphallarinnar í morgun. 

Salmar er stærsti hagsmunaðilinn í sjókvíaeldi á Íslandi í gegnum fyrirtækið Arnarlax á Bíldudal. Sjókvíaeldi Arnarlax fer hins vegar fram í íslenskum fjörðum eins og Arnarfirði og Tálknafirði en ekki úti á rúmsjó og eiga þau jákvæðu, sjálfbæru áhrif á laxeldisiðnaðinn sem félögin telja að aflandseldið feli í sér ekki við á Íslandi. Norska félagið á meirihluta í Arnarlaxi.

Vill 500 þúsund tonna landsframleiðsluKjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax, hefur mælt fyrir 500 þúsund tonna framleiðslu á eldislaxi á Íslandi.

Upphaf „nýrra tíma“

Samstarf félaganna var kynnt í lok ágúst, líkt og Stundin greindi frá þá, en hefur nú verið komið á með formlegum hætti.  Í lok ágúst var haft eftir forstjóra Salmar að samvinnan fæli í sér upphafið að nýjum tímum í laxeldi í heiminum.  Þá sagði hann:  ,,Fjárfesting Salmar í aflandseldi markaði upphafið að nýjum tíma í fiskeldi. Við erum mjög glaðir að hefja þetta samstarf með sterku fyrirtæki eins og Aker. Saman munum við leiða þessa þróun og tryggja sjálfbæran vöxt út frá forsendum laxsins. Við ætlum að nýta okkur möguleika sjávarins til að framleiða hollan mat, nota stafræna og umhverfisvæna tækni og tryggja, ásamt samstarfsaðilum okkar sem koma fisknum á markað, matarframleiðslu sem er sjálfbær til framtíðar. Saman getum við tekið næsta tækniskrefið í fiskeldi í sjó og metnaður okkar er hnattrænn.“

„Við munum líklega ekki sjá hefðbundnar, alveg opnar sjókvíar neins staðar árið 2030.“
Atle Eide

Vilja 500 þúsund tonna framleiðslu á Íslandi

Í fréttatilkynningunni nú kemur enn fremur fram að nýr stjórnarformaður í félagi Salmar og Aker um að þróa aflandseldið verði Atle Eide. Hann hefur áður verið stjórnarformaður Salmar As.  Atle hefur boðað nýja tíma í laxeldi í gegnum árin og vísað til þróunar á aflandseldi á laxi. Í viðtali fyrr á árinu sagði Atle að árið 2030 yrðu sennilega ekki neinar opnar sjókvíar í rekstri: „Við munum líklega ekki sjá hefðbundnar, alveg opnar sjókvíar neins staðar árið 2030,“ sagði hann. 

Á sama tíma berst Arnarlax fyrir því að stórauka framleiðslu sína í opnum sjókvíum á Íslandi. Stjórnarformaður Arnarlax, Kjartan Ólafsson, hefur sagt að félagið vilji „rækta bláu akrana sem finnast í efnahagslögsögu landsins“, það er að segja firðina við Ísland.  „Með 500.000 tonna ársframleiðslu á laxfiski mætti margfalda útflutningsverðmæti sjávarafurða og fylgja þar með farsælli vegferð vinaþjóða okkar [Noregs og Færeyja].“ 

Í fréttatilkynningunni í morgun segir Gustav Witzoe hins vegar að eigendur Salmar Aker Ocean hlakki til að þróa lausnir í aflandseldi. „Salmar Aker Ocean, og eigendur þess, hlakka til að sameinast um að þróa aflandseldi sem mikilvægan þátttakanda í því til framtíðar að bjóða upp á heilbrigðar sjávarafurðir um allan heim.“

Miðað við þetta er Salmar AS að segja að aflandseldið sé framtíðin í greininni og að sjókvíaeldið, sem meðal annars Arnarlax stundar á Íslandi, sé það ekki þrátt fyrir að fyrirtækið vilji að 500 þúsund tonn verði framleidd í fjörðum Íslands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
FréttirLaxeldi

Katrín eini mat­væla­ráð­herra VG sem tek­ur ekki af­stöðu gegn gjafa­kvót­an­um í lax­eld­inu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.
Katrín telur sig ekki þurfa að svara spurningum um laxeldisfrumvarp
FréttirLaxeldi

Katrín tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um lax­eld­is­frum­varp

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­setafram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra þar til fyr­ir tæp­um mán­uði síð­an, tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um mál sem hún kom að á Al­þingi sem enn eru í vinnslu þar. Í fyrsta skipti er for­setafram­bjóð­andi í þeirri stöðu að þurfa mögu­lega að sam­þykkja eða synja lög­um sem við­kom­andi kom að á þingi sem ráð­herra.
Gagnrýni SFS leiddi til lykilbreytinga á laxeldisfrumvarpinu
SkýringLaxeldi

Gagn­rýni SFS leiddi til lyk­il­breyt­inga á lax­eld­is­frum­varp­inu

Gagn­rýni frá Sam­bandi ís­lenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja spil­aði stóra rullu í því að nýju frum­varpi um lax­eldi var breytt og við­ur­lög minnk­uð við slysaslepp­ing­um. Þetta er ann­að mest um­deilda ákvæði frum­varps­ins en hitt snýst um að gefa lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um ótíma­bund­in leyfi til sjókvía­eld­is hér við land. Mat­væla­ráð­herra vill hætta við ótíma­bundnu leyf­in í lax­eld­inu eft­ir harða um­ræðu á Al­þingi.

Mest lesið

Domino's-þjóðin Íslendingar
2
Skýring

Dom­ino's-þjóð­in Ís­lend­ing­ar

Guð­fað­ir og stofn­andi Dom­ino´s á Ís­landi, Birg­ir Bielt­vedt, hef­ur enn og aft­ur selt hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu og er út­gerð­ar­kon­an Guð­björg Matth­ías­dótt­ir nú orð­inn stærsti hlut­haf­inn. Birg­ir er rauði þráð­ur­inn í æv­in­týra­legri sögu pitsu­fyr­ir­tæk­is­ins á Ís­landi sem hef­ur kom­ið sér í ein­staka mark­aðs­stöðu á skyndi­bita­mark­að­in­um á Ís­landi.
„Ótrúlega falleg framtíðarsýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræðisaldri
6
ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrú­lega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sín­um á ní­ræðis­aldri

Rann­veig Haf­berg hélt að hún gæti aldrei byrj­að að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu mataræði og hleyp­ur vænt­an­lega sitt tí­unda of­ur­m­ara­þon á Lauga­veg­in­um í sum­ar. Ey­steinn Haf­berg, fað­ir henn­ar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eft­ir hjarta­áfall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í ís­lenska hlaupa­heim­in­um. Móð­ir henn­ar er líka byrj­uð að hlaupa. Og barna­börn­in.
Eigi að læra íslensku áður en fjölskyldan kemur
9
FréttirFlóttamenn

Eigi að læra ís­lensku áð­ur en fjöl­skyld­an kem­ur

Meiri­hluti alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar tel­ur efni til að víkka að­eins skil­yrði til fjöl­skyldusam­ein­ing­ar í um­deildu út­lend­inga­frum­varpi. Skil­yrði til und­an­þágu eru þó frem­ur ströng: Flótta­mað­ur­inn sem sæk­ir um fjöl­skyldusam­ein­ingu gæti feng­ið und­an­þágu ef hann hef­ur á einu ári lært ís­lensku, ver­ið virk­ur á vinnu­mark­aði í átta mán­uði, hef­ur til­tækt íbúð­ar­hús­næði fyr­ir fjöl­skyld­una og get­ur fram­fleytt sér.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
5
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
8
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
5
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
8
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu