Dauðinn mótar okkur flest
Karl Gunnarsson leigubílstjóri stóð fyrir framan leigubílaröðina í Aðalstræti þegar blaðamann bar að garði. Hann var að sóla sig eins og aðrir á slíkum sólardögum. Dauðinn hefur mótað Karl og dauði móður hans kannski mest. Hún mótaði hann sem ungan dreng og gerir enn. Karl var viss um að hún væri meira að segja með í samtalinu.